Birt: March 29, 2009
Kæra vegna brota Egils Helgasonar og RÚV á útvarpslögum og lögum um Ríkisútvarpið
Birt: March 27, 2009
RÚV hefur breytt tilhögun kosningasjónvarps eftir að Útvarpsréttarnefnd fjallaði um kæru Lýðræðishreyfingarinnar. Nú fá öll framboð aðgang að leiðtogafundi í sjónvarpssal sem birta opinberlega framboðslista í einu kjördæmi.
Birt: March 26, 2009
Formaður Borgarahreyfingarinnar Herbert Sveinbjörnsson er á ferð um landið í kosningabaráttu fyrir Borgarahreyfinguna á launum frá Ríkisútvarpinu.
Á launum hjá RÚV í framboðsferð thumbnailFram kom í fréttum í gær að annar forsprakki samtakanna Gunnar Sigurðsson leikstjóri búsettur í Reykjavík leiðir lista Borgarahreyfingarinnar í því kjördæmi sem hefur mest vægi atkvæði á landsvísu.
Íslenska þjóðin hefur verið blekkt [...]
Birt: March 26, 2009
Útvarpsréttarnefnd fundar um kæru Lýðræðishreyfingarinnar vegna brota Ríkisútvarpsins RÚV á útvarpslögum og lögum um Ríkisútvarpið
Birt: March 25, 2009
Verði ekki bætt úr hlýtur að vakna sú spurning hvort hægt sé að taka þátt í slíku skrípalýðræði sem RÚV og stjórnvöld bjóða þjóðinni.
Hvort ekki þurfi að fá aðstoð Öryggis og Samvinnustofnunar Evrópu að alþingiskosningarnar verði lýstar ólögmætar. Slíkur er alvarleiki málsins að mati lögmanna Lýðræðishreyfingarinnar.
Birt: March 24, 2009
Enginn úr Íslandshreyfingunni er í framboði á neinum lista í komandi Alþingiskosningum og allt loftið virðist úr Ómari og félögum.
Birt: March 22, 2009
Verið velkomin að kíkja við til okkar og skoða Lýðvarpið, nýja útvarpsstöð sem var að hefja útsendingar á FM100.5.
Útsendingar eru daglega frá kl. 07 þegar Íslandsklukkan vekur landsmenn. Frambjóðandinn kl. 11-12 og fréttavaktin kl. 12-14 þar sem þú færð fréttirnar frá öllum fjölmiðlunum og óritskoðaðar fréttir frá Ríkisútvarpinu!
Vefsíðan er www.frettavakt.is og útvarp Lýðvarpsins á FM100.5
Opið hús í dag og næstu daga kl. 16-19: Verið velkomin að kíkja við í kaffi til okkar kl. 14-18 í Vogasel 1, 109 Reykjavík. Síminn er: 4500500.
Birt: March 18, 2009
Reykjavík síðdegis á Bylgjunni fjallaði um hugmyndir Lýðræðishreyfingarinnar um beint lýðræði með notkun hraðbanka. Bylgjan - Hlusta hér
Einnig var fjallað um stefnumál Lýðræðishreyfingarinnar á útvarpi Sögu. ÚtvarpSaga - Hlusta hér
Sjá nánar um Lýðræðishreyfinguna á www.lydveldi.is
Tilnefna frambjóðendur á www.austurvollur.is
Birt: March 16, 2009
Vanhæfni fréttamanna og stjórnenda RÚV stefnir lýðræðislegum kosningum í voða. Spjátrungarnir sem hafa hreiðrað um sig í fílabeinsturni Ríkisútvarpsins fjarlægjast stöðugt meira grasrót samfélagsins og hafa lýðræðisreglur sem settar eru um starfsemina að engu.
Páll Magnússon tekur við uppsagnarbréfi í yfirstærð sem tugir manns höfðu skrifað undir. Við viljum Pál og allt hans vanhæfa hyski burt úr ríkisfjölmiðlunum.
Birt: March 15, 2009
Þjóðinni ofbýður hátterni Ríkisútvarpsins og vill útvarpsstjórann burt. Tugir manns skrifuðu undir uppsagnarbréf Lýðræðishreyfingarinnar til Páls Magnússonar sem afhent verður mánudag. Færri komust að en vildu, blaðið sem er í yfirstærð fylltist á augabragði.